Líf og dauði
Gamla bíó · lau 28. okt kl. 20:00
Líf og dauði
- Mexíkóskur matur og tónleikar í Gamla bíói
Í einstakri veislu í Gamla bíói fer Svanlaug Jóhannsdóttir söngkona yfir það tónum og tali hvernig hugmyndir „Dags hinna dauðu“ í Mexíkó gætu nýst okkur til þess að gæða lífið meiri dýpt og gleði.
„Lifum brosandi til þess að deyja glöð” segja Mexíkanar. Þeir gleðjast yfir þeim sem á undan hafa farið, fagna lífinu, dauðanum og minnast fólksins síns með litríkri gleði og veisluhöldum. Íslendingar hafa tekið hefðinni, “Degi hinna dauðu” fagnandi og á hverju ári skreytir fjöldi fólks sig og nýtur þess að stíga inn í annan hugarheim.
Gestum býðst að gæða sér á sérhönnuðum fordrykk Don Julio, þriggja rétta máltíð í mexíkóskum stíl klukkan 18:00 og njóta tónleika í framhaldi af því - eða mæta beint á tónleikana klukkan 20:00.
Áhorfendur eru sérstaklega hvattir til að klæða sig upp í tilefni dagsins en engin skylda þó.
MIÐASALA HÉR
Söngkona og sögumaður: Svanlaug Jóhannsdóttir
Fordrykkur
3 rétta mexíkósk matarveisla
Hljófæraleikarar: Eiríkur Rafn Stefánsson, Óttar Sæmundsen, Karl James Pestka, Ásgeir Ásgeirsson og Daniel Ramirez
Sviðshönnuður og skúlptúrar: Erla Lilliendahl
Ljósahönnuður: Hákon Örn Helgason
Hljóð: Friðfinnur Sigurðsson
Plakat: David Young og Veronika Guls
Fantasíuförðun: Vera Líndal Guðnadóttir
Ljósmyndun: Þorri Líndal Guðnason
Fordrykkurinn er í boði Don Julio