Íris Björk Gunnarsdóttir

Söngkona

íris björk

Íris Björk Gunnarsdóttir er lýrískur sópran sem hefur undanfarin ár sannað sig sem efnileg ung óperusöngkona, bæði á Íslandi og í Noregi. Hún er með bakkalárgráðu frá Listaháskóla Íslands, nam eitt ár við Óperuháskólann í Stokkhólmi og útskrifaðist með mastersgráðu frá Óperuháskólanum í Osló sumarið 2023.

Leikárið 2023-2024 var hún ráðin við Den Norske Opera & Ballett og fór með hlutverk Anninu í La traviata, Díönu í Orfeus í Undirheimum, Kate Pinkerton í Madama Butterfly og Sœur Mathilde í Dialogues des Carmélites. Haustið 2024 syngur hún Sylvu í Die Csárdásfürstin eftir Kálmán í Bodø og Tromsø auk þess að vera hluti af söngvarahóp Óperudaga í Reykjavík. Vorið 2025 tekur hún þátt í heimsfrumsýningu nýrrar óperu Stian Westerhus nefnd Fønix í leikstjórn Lisa Lie í Den Norske Opera.

Íris Björk hefur hlotið fjölda styrkja á Íslandi, Svíþjóð og Noregi. Þá ber helst að nefna styrk Halldórs Hansen fyrir framúrskarandi námsárangur við Listaháskóla Íslands, styrk Tom Wilhelmsen í Noregi og styrk Ruud-Wallenberg í Svíþjóð. Íris Björk bar sigur úr býtum í söngkeppninni Vox Domini í janúar 2018 og hlaut titilinn ,,Rödd ársins”. Einnig var hún ein sigurvegara Ungra einleikara vorið 2021 og kom fram ásamt Sinfóníhljómsveit Íslands á samnefndum tónleikum.

Íris Björk hefur sérstakan áhuga á nútímaóperum og frásögnum sem hafa djúpstæð áhrif á áhorfendur. Verkefni hennar ,,Hinseginleiki á óperusviðinu” er hennar framlag til jafnréttisbaráttu hinsegin einstaklega með auknum sýnileika hinsegin karaktera og óperulist sem speglar samfélagið okkar eins og það er.

Styrktar- og samstarfsaðilar