Viktoría Sigurðardóttir
Söngkona

Viktoría Sigurðardóttir útskrifaðist sem leikkona frá London College of Music með BA í Musical Theatre vorið 2016. Hún lék í Matthildi og Rocky Horror Show í uppfærslum Borgarleikhússins, Vorið Vaknar í uppfærslu Leikfélags Akureyrar og Bakkabræður með Leikhópnum Lottu. Sumarið 2019 lék hún í uppfærslu af We Will Rock You í Háskólabíói. Viktoría hélt einsöngstónleika í Hörpu með tónleikaröðinni Velkomin heim árið 2018. Í London hlaut hún The Griffiths Prize og The Andrew Lloyd Webber prize fyrir leiktúlkun í söng og fór hún með hlutverk Minu Murrey í Dracula the Musical eftir Alex Loveless og hlutverk Emmu Goldman og húsfreyjunnar í Assassins eftir Stephen Sondheim.